22.11.2009 | 21:48
Ein þyrluvakt
Ég minnist þess að fyrir nokkrum mánuðum síðan var þremur þyrluflugmönnum sagt upp störfum hjá LHG. Þá sagði dómsmálaráðherra að þetta hefði enga þjónustuskerðingu í för með sér.
Þessi frétt sýnir að annað kom heldur betur á daginn. Hvað ef þessi maður hefði verið lífshættulega veikur/slasaður? Hefði þyrlan þá farið út fyrir þessar 20-30 mílur? Ég leyfi mér að efast um að áhöfn þyrlunar sé líkleg til að hætta sér lengra vitandi að það kemur enginn að bjarga þeim ef eitthvað kemur uppá.
|
Þyrlan sækir veikan skipverja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2009 | 10:17
Dæmigerð fyrirsögn
Það fer orðið alvarlega í skapið á mér hvað þetta táfýlusport tröllríður öllu. Ekki gæti mér t.d. verið meira sama þó það sé fótboltaleikur í kvöld. Ekki gæti mér verið meira sama hver situr á bekknum og hver vill fara frá einhverju líði í úspekistan.
Gerið það ágætu blaða- og fréttamenn, sýnið okkur sem höfum engan áhuga á þessu sparki þó þá virðingu að koma ekki með hálfgert skítkast út í þá sem bjóða upp á val við bölvaðan boltann.
Ég ætla nú ekki einu sinni að ganga svo langt að biðja þessa sömu menn um fréttir af öðru en boltaíþróttum, það er líklega álíka árangursríkt og að skokka á vegg.
|
Foreign Monkeys fylgjast ekki með fótbolta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2009 | 11:21
Ætla danskir að vera til frambúðar?
Það er forvitnilegt að sjá að Georg telur þörf á því að fá backup frá Dönum núna þegar það lítur út fyrir að aðeins ein vakt verði starfandi í um viku tíma. Hvernig er þetta ástand nú ólíkt því sem kemur upp þegar uppsagnir þessara þriggja flugmanna taka gildi?
Dómsmálaráðherra segir að ekki verði þjónustuskerðing þó 3 flugmenn fari.
Ég spyr aftur: Hvernig er þetta ástand nú ólíkt því sem kemur upp þegar uppsagnir þessara þriggja flugmanna taka gildi?
Í fréttinni er vitnað til orlofa starfsmanna og því að margir séu erlendis í simma. Ég geri ráð fyrir að max 4 flugmenn séu erlendis á sama tíma. Ef að upp getur komið staða um manneklu fyrir fækkun flugmanna, hvað gerist þá eftir hana? Getum við lent í því að engin áhöfn sé starfhæf?
Einhverstaðar var því fleygt að 70% ársins yrði aðeins ein vakt starfandi ef staðið verður við þessar uppsagnir. Ætli þeir dönsku séu ekki bara til í að planta dallinum sínum hérna fyrir utan svo sjómenn og ferðafólk geti treyst að því verði bjargað.
|
Þyrla í dönsku varðskipi á bakvakt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2008 | 04:38
Brot gegn valdstjórninni í lagi?
Friðsamleg mótmæli eiga alltaf rétt á sér, hvert svo sem málefnið er. Þarna er lykill "friðsamleg" en um leið og stigið er út fyrir þann ramma á Lögregla að beita því sem þurfa þykir til að stöðva slíkt.
Þegar mótmælendur fara yfir strikið, sér í lagi gegn valdstjórninni, þ.e. brjóta rúður á Lögreglustöð eða jafnvel ryðjast þar inn vopnaðir spýtum (líks og fram kemur á Vísi) Þá er málið einfalt - Handtakið við komandi og dæmið!
Mér finnst það virðingarleysi sem Lögreglu er sýnt óþolandi. Mér virðist stundum sem við Íslendingar séum agalaus með öllu og berum ekki virðingu fyrir nokkru.
Í heitapottinum í dag heyrði ég mann segja, mjög heitt í hamsi, "menn vinna sér inn virðingu, hún er ekki sjálfgefin". - Þessu er ég yfirleitt alltaf sammála en þetta á ekki við um Löggæslu nema að litlu leiti, við eigum og verðum að bera virðingu fyrir Lögreglunni og öllu henni tengdu. Það að fólk láti sér detta í hug að skemma eigur Lögreglunnar er ótrúlegt - slíkt fólk á að fá harðan dóm að mínu mati.
Hvort handtaka þessa Hauks var rétt í dag hef ég ekki hugmynd um enda þekki ég ekki þetta mál og nenni ekki að kynna mér það. Hann gerðist brotlegur og þarf að taka út sýna refsingu, en það er auðvitað ekki ásættanlegt ef Lögregla fer ekki eftir settum reglum. Þá er slíkt einfaldlega kært og fer eðlilegar leiðir í kerfinu. - Það sakar ekki að mótmæla friðsamlega en það gerir íllt verra að fara yfir það strik.
Við megum ekki gleyma að við erum siðmenntuð þjóð, á það við um alla aðila.
|
Mótmæli við lögreglustöðina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2008 | 11:56
Afhverju frá Flugstoðum?
Hvernig ætli standi á að vél frá Flugstoðum er send í svona útkall, þekkir það einhver?
Ætti svona lagað ekki að vera á könnu Landhelgisgæslunnar?
Samkvæmt fréttum undanfarið virðist ansi þrönt í búi hjá gæslunni og spyr maður sig hvort fokkerinn eða þyrlusveit gæslunnar fari ekki í svona lagað vegna fjárskorts?
Alvarlegt fyrir sjómenn og aðra ferðalanga ef hætta er á að Landhelgisgæslan þurfi að draga úr þjónustustigi.
Starfssemi gæslunnar í lágmarki
Lágmarskstarfssemi en tilbúin til neyðarverka
|
Neyðarsending könnuð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.10.2008 | 20:19
Til hamingju!
Frábært frábært frábært!
Innilega til hamingju með frábært gengi.
Andinn, baráttan og samheldninn er til fyrirmyndar.
|
Ísland á EM 2009 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008 | 03:06
Fáfræði mín er alger!
Nú skil ég bara akkurat ekki neitt! Eftir að hver sérfræðingurinn á fætur öðrum hefur lýst því yfir að það fari allt til andskotans ef ekki verði gripið til aðgerða þá ákveða þessir apakettir sem ég kaus að gera bara ekki neitt.
Ég hef reyndar lengi undrað mig á því hvernig menn taka að sér pólitísk embætti. Segjum sem svo að stórfyrirtæki æti að ráða fjármálastjóra, þá leitar það trúlega að viðskiptafræðingi, hagfræðing eða álíka manni - engar slikar kröfur eru gerðar til ráðherra. Ahh... og ég sem hef gert grín að bandaríkjamönnum fyrir að kjósa yfir sig menn eins og Bush og huganlega fólk eins og Söru Palin.
Geir hefur ekkert unnið fegurðarsamkeppni er það?
|
Ekki þörf á aðgerðapakka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2008 | 03:02
Döpur fréttamennska
Í þessari frétt eru þrjú fæðubótaefni nafngreind og þau talin geta valdið heilustjóni. Það sem ekki kemur fram í fréttinni er að öll þessi efni eru frá sama framleiðanda.
http://www.olimp-supplements.com
Einhver hlýtur ástæðan að vera að þær stofnanir sem vísað er í nefna þessi þrjú efni, sem öll koma frá sama framleiðenda en ekki sambærileg efni frá þeim hundruðum framleiðenda sem vinna álíka efni með svipaða uppbyggingu?
Í fréttinni segir: Sameiginleg virkni synefrins og koffíns í fitubrennsluefnunum er talin geta valdið alvarlegu heilsutjóni. Þarna er verið að gefa til kynna að öll efni sem innihalda þessa blöndu geti verið hættuleg, en samt er aðeins einn framleiðandi nefndur til sögunnar.
Mér finnst það í besta falli ábyrgðarleysi af blaðamönnum að birta grein sem þessa þar sem annaðhvort er verið að ráðast alvarlega á einn framleiðenda í stað þess að allir ættu að sitja í súpunni eða þá að óbeint eru allir aðrir gerðir grunsamlegir þar sem einn gerði eitthvað af sér, hvort heldur sem er getur ekki talist ásættanleg vinnubrögð
Undir fréttinni segir "Nánar í 24 stundum." Það er ekki meira að lesa í 24 stundum, bara nákvæmlega sama óunna fréttinni um ekki neitt.
|
Fitubrennsluefni geta valdið heilsutjóni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


