22.11.2009 | 21:48
Ein þyrluvakt
Ég minnist þess að fyrir nokkrum mánuðum síðan var þremur þyrluflugmönnum sagt upp störfum hjá LHG. Þá sagði dómsmálaráðherra að þetta hefði enga þjónustuskerðingu í för með sér.
Þessi frétt sýnir að annað kom heldur betur á daginn. Hvað ef þessi maður hefði verið lífshættulega veikur/slasaður? Hefði þyrlan þá farið út fyrir þessar 20-30 mílur? Ég leyfi mér að efast um að áhöfn þyrlunar sé líkleg til að hætta sér lengra vitandi að það kemur enginn að bjarga þeim ef eitthvað kemur uppá.
|
Þyrlan sækir veikan skipverja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


Athugasemdir
Hefði þá verið kölluð út önnur vakt?
Hmm (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 23:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.